Persónuverndarstefna Spotify
Gildir frá og með 10. október 2024
2. Persónuverndarréttindi þín og stýringar
3. Persónuupplýsingar sem við söfnum um þig
4. Tilgangurinn með því að nota persónuupplýsingar þínar
5. Persónuupplýsingum þínum deilt
7. Flutningur til annarra landa
8. Verndun persónuupplýsinga þinna
10. Breytingar á þessari stefnu
11. Hvernig á að hafa samband við okkur
1. Um þessa stefnu
Þessi stefna lýsir því hvernig við vinnum úr persónuupplýsingunum þínum hjá Spotify AB.
Hún á við um notkun þína á:
- allri straumspilunarþjónustu Spotify sem notandi. Þar á meðal er:
- notkun þín á Spotify í öllum tækjum
- sérsniðin notendaupplifun þín
- innviðirnir sem þarf til að veita þjónustu okkar
- tenging Spotify-reiknings þíns við annað forrit
- bæði ókeypis straumspilun og áskrift (sem hvort um sig nefnist „þjónustukostur")
- önnur þjónusta Spotify þar sem finna má tengil á þessa persónuverndarstefnu. Þar á meðal er vefsvæði Spotify, þjónustuverið og samfélagssvæðið
Héðan í frá nefnist þetta einu nafni „þjónusta Spotify".
Öðru hverju kunnum við að þróa nýja þjónustu eða bjóða viðbótarþjónustu. Slík þjónusta lýtur jafnframt þessari stefnu nema annað sé tekið fram þegar við kynnum viðkomandi þjónustu.
Þessi stefna er ekki...
- notkunarskilmálar Spotify. Það er sérstakt skjal sem er lagalegi samningurinn milli þín og Spotify um notkun á þjónustu Spotify. Þar er jafnframt lýst reglum Spotify og réttindum þínum sem notanda
- um notkun þína á annarri þjónustu Spotify þar sem sérstök persónuverndarstefna gildir. Önnur þjónusta Spotify er meðal annars Anchor, Soundtrap, Megaphone og Spotify Live-forritið
Önnur úrræði og stillingar
Lykilupplýsingar um persónuupplýsingar þínar má finna í þessari stefnu. Þú gætir þó viljað skoða önnur persónuverndarúrræði og -stýringar okkar:
- Persónuverndarmiðstöðin: Notendavæn miðstöð með yfirliti yfir helstu málin.
- Persónuvernd reiknings: Stjórna vinnslu tiltekinna persónuupplýsinga, þar á meðal sérsniðinna auglýsinga.
- Tilkynningastillingar Lærðu hvernig á að stilla hvaða markaðssamskipti þú færð frá Spotify.
- Stillingar (tölvu- og snjalltækjaforrit): Stillingar á tilteknum hlutum þjónustu Spotify, svo sem „sýnileika" og „grófu efni". Með „sýnileikastillingunni" getur þú:
- falið virkni
- valið hvort þú deilir því sem þú hlustar á á Spotify með fylgjendum þínum
- valið hvort þú sýnir listamenn sem þú hefur hlustað á nýlega á prófílnum þínum
Með stillingunni fyrir „gróft efni" getur þú stýrt hvort hægt sé að spila efni sem flokkast sem gróft á Spotify-reikningnum þínum.
- Kökureglur: Upplýsingar um hvernig við notum kökur og hvernig þú notar kökustillingar. Kökur eru skrár sem eru vistaðar í símanum, spjaldtölvunni eða tölvunni þegar þú heimsækir vefsíðu.
2. Persónuverndarréttindi þín og stýringar
Ýmis lög um persónuvernd veita einstaklingum réttindi varðandi persónuupplýsingar sínar. Þessi lög eru meðal annars almenna persónuverndarreglugerðin, eða „GDPR".
Sum réttindi eiga aðeins við þegar Spotify notar tiltekinn „lagagrundvöll" til að vinna persónuupplýsingar. Við útskýrum hvern lagagrundvöll og hvenær Spotify notar hvern og einn í 4. hluta, „Tilgangurinn með því að nota persónuupplýsingar þínar".
Taflan hér að neðan sýnir:
- réttindi þín
- aðstæður þegar þau eiga við (svo sem lagagrundvöllinn sem krafist er)
- hvernig skuli nýta þau
Þú hefur rétt á ...
|
Hvernig?
|
|
---|---|---|
Að fá vitneskju |
Að fá vitneskju um persónuupplýsingarnar sem við vinnum og hvernig við vinnum úr þeim. |
Við gerum þér viðvart:
|
Aðgengi |
Að fá aðgengi að persónuupplýsingunum sem við vinnum. |
Til þess að biðja um afrit af persónuupplýsingum þínum frá Spotify getur þú ýmist:
Þegar þú sækir gögnin þín færðu upplýsingar um gögn þín sem Spotify þarf að veita samkvæmt 15. grein GDPR. Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um hvernig við vinnum persónuupplýsingar þínar geturðu haft samband við okkur. |
Leiðréttingu |
Að fara fram á að við leiðréttum eða uppfærum rangar eða ófullnægjandi persónuupplýsingar. |
Þú getur breytt notandaupplýsingum þínum undir „Breyta prófíl“ á reikningnum þínum eða með því að hafa samband við okkur. |
Eyðingu |
Að fara fram á að við eyðum tilteknum persónuupplýsingum. Þú getur til dæmis farið fram á að við eyðum persónuupplýsingum:
Upp geta komið aðstæður þar sem Spotify getur ekki eytt gögnunum þínum, til dæmis þegar:
|
Það eru nokkrar leiðir til að eyða persónuupplýsingum af Spotify:
|
Takmörkun |
Að fara fram á að við hættum að vinna úr einhverjum persónuuplýsingum þínum. Þú getur gert þetta ef:
Þú getur farið fram á að við hættum þessari vinnslu tímabundið eða varanlega. |
Þú getur nýtt rétt þinn til takmörkunar með því að hafa samband við okkur. |
Andmælum |
Að andmæla vinnslu okkar á persónuupplýsingum. Þú getur gert þetta ef:
|
Til að nýta þér réttindi þín til að mótmæla geturðu:
|
Flutningi eigin gagna |
Að óska eftir afriti af persónuupplýsingum þínum á rafrænu formi og hafa rétt til að senda þær persónuupplýsingar til notkunar í þjónustu á vegum annars aðila. Þú getur beðið okkur um að senda gögnin þín þegar við vinnum með persónuupplýsingar þínar á lagagrundvelli samþykkis eða efnda samnings. Spotify mun þó reyna að verða við öllum beiðnum að því marki sem hægt er. |
Upplýsingar um nýtingu réttar til flutnings eigin gagna má finna undir „Aðgengi“ hér að ofan. |
Að lúta ekki sjálfvirkri ákvarðanatöku |
Að lúta ekki ákvörðun sem byggist eingöngu á sjálfvirkri ákvarðanatöku (ákvörðunum án mannlegrar aðkomu), þar með talið gerð persónusniðs, í tilfellum þar sem ákvörðunin myndi hafa lagaleg eða álíka marktæk áhrif á þig. |
Spotify notar ekki sjálfvirka ákvarðanatöku af þessu tagi í þjónustu Spotify. |
Afturköllun samþykkis |
Afturköllun samþykkis þíns fyrir söfnun eða notkun okkar á persónuupplýsingum. Þú getur gert þetta ef Spotify vinnur persónuupplýsingar þínar á lagagrundvelli samþykkis. |
Til að afturkalla samþykki þitt getur þú:
|
Að leggja fram kvörtun |
Hafðu samband við sænsk persónuverndaryfirvöld eða persónuverndaryfirvöld á þínu svæði ef þú hefur einhverjar spurningar eða áhyggjuefni. |
Upplýsingar um sænsk persónuverndaryfirvöld má finna hér. Einnig er hægt að fara á vefsvæði persónuverndaryfirvalda í þínu landi. |
Stjórn á sérsniðnum auglýsingum
Hvað eru sérsniðnar auglýsingar?
- Þetta er þegar við notum upplýsingar um þig til að sérsníða auglýsingar til að þær eigi betur við fyrir þig. Þetta nefnist einnig auglýsingar á grundvelli áhugamála.
- Dæmi um sérsniðnar auglýsingar er þegar auglýsingaaðili er með upplýsingar um að þú hafir áhuga á bílum. Það gæti gert okkur kleift að birta þér bílaauglýsingar.
Hvernig á að stýra sérsniðnum auglýsingum:
- Þú getur stjórnað sérsniðnum auglýsingum á síðunni Persónuvernd reiknings undir „Sérsniðnar auglýsingar".
- Þú getur líka stýrt sérsniðnum auglýsingum fyrir tiltekin hlaðvörp með því að nota tengilinn í lýsingu þáttarins. Þetta á við þegar efnisveitan setur auglýsingar inn í hlaðvarpið til að fjármagna það. Umsjónarveitan, sem er ef til vill ekki Spotify, hefur umsjón með þessum stýringum fyrir hlaðvarpið.
Ef þú hefur „afþakkað" sérsniðnar auglýsingar á síðunni Persónuvernd reiknings gætirðu samt fengið auglýsingar. Þetta getur falið í sér ókeypis þjónustukostinn okkar sem og greidda þjónustukostinn okkar, eftir því sem við á (t.d. auglýsingar í hlaðvörpum). Svona auglýsingar byggjast á skráningarupplýsingunum þínum og því sem þú hlustar á í þjónustunni okkar. Ef þú straumspilar til dæmis matreiðsluhlaðvarp gætirðu heyrt auglýsingu um matvinnsluvél.
Viðeigandi aldur fyrir sérsniðnar auglýsingar:
- Viðeigandi aldur fyrir sérsniðnar auglýsingar miðast við landið sem þú ert í og reglur þess um sérsniðnar auglýsingar. Þú færð ekki sérsniðnar auglýsingar nema þú hafir náð viðeigandi aldri.
- Þú getur ekki „samþykkt" sérsniðnar auglýsingar ef þú ert undir aldursmörkunum.
- Þú ferð að fá sérsniðnar auglýsingar þegar þú nærð aldursmörkunum í þínu landi. Þegar það gerist færðu skilaboð þess efnis í þjónustu Spotify. Í skilaboðunum verður tengill á síðuna Persónuvernd reiknings þar sem þú getur alltaf breytt því sem þú velur eða „afþakkað" sérsniðnar auglýsingar.
3. Persónuupplýsingar sem við söfnum um þig
Í þessum töflum má sjá flokka persónuupplýsinga sem við söfnum frá þér.
Safnað þegar þú nýskráir þig í þjónustu Spotify
eða uppfærir reikninginn þinn
|
|
---|---|
Flokkur |
Lýsing |
Notandaupplýsingar |
Persónuupplýsingar sem við þurfum til að búa til Spotify-reikninginn þinn og sem gera þér kleift að nota þjónustu Spotify. Tegund gagna sem safnað er fer eftir tegund þjónustunnar sem þú notar, hvernig þú stofnar reikninginn þinn, landinu sem þú ert í og hvort þú notar þjónustu þriðja aðila til að skrá þig inn. Þetta gæti meðal annars verið:
Við fáum sumar upplýsingar frá þér, t.d. af skráningareyðublaðinu eða reikningssíðunni. Við söfnum einnig sumum þessara upplýsinga úr tækinu þínu, t.d. land eða svæði. Frekari upplýsingar um hvernig við söfnum þessum upplýsingum og notum þær er að finna í hlutanum „Almenn (ekki nákvæm) staðsetning þín“ í flokknum „Notkunargögn“. |
Upplýsingar um heimilisfang |
Við kunnum að biðja um heimilisfangið þitt og vinna úr því af eftirtöldum ástæðum:
Í sumum tilfellum kunnum við að nota forrit þriðja aðila, svo sem Google Maps, til að staðfesta heimilisfangið þitt. |
Safnað með notkun þinni á þjónustu Spotify | |
---|---|
Flokkar |
Lýsing |
Notkunargögn |
Persónuupplýsingar sem er safnað er um þig þegar þú opnar eða notar þjónustu Spotify. Þar á meðal eru nokkrar tegundir upplýsinga sem tilgreindar eru í eftirfarandi hlutum. Upplýsingar um hvernig þú notar Spotify Til dæmis:
Tæknilegu gögnin þín Til dæmis:
Almenn (ekki nákvæm) staðsetning þín Almenn staðsetning er til dæmis, land, hérað eða ríki. Við getum greint þetta út frá tæknilegum gögnum (t.d. IP-tölunni þinni, tungumálastillingu tækisins) eða greiðslugjaldmiðli. Við þurfum þetta til að:
Gögn úr skynjara tækis Gögn um hreyfingu eða stefnu frá skynjara í tækinu þínu ef þörf er á til að bjóða upp á eiginleika í þjónustu Spotify sem þurfa þessi gögn. Þetta eru gögn sem tækið þitt safnar um það hvernig þú hreyfir þig eða heldur tækinu. |
Viðbótarupplýsingar sem þú gætir kosið að veita okkur | |
---|---|
Flokkar |
Lýsing |
Raddgögn |
Ef raddaðgerðir eru tiltækar á þínum markaði, og ef þú hefur kosið að nota raddeiginleika, söfnum við og vinnum úr raddgögnum. Með raddgögnum er átt við hljóðupptökur af rödd þinni og uppskriftir af þessum upptökum. Frekari upplýsingar um hvernig mismunandi raddaðgerðir virka og hvernig þú getur stjórnað þeim og slökkt á þeim má finna í raddstýringarstefnu okkar. |
Greiðslu- og kaupupplýsingar |
Ef þú kaupir eitthvað á Spotify eða skráir þig í greiddan þjónustukost eða prufuáskrift þurfum við að vinna úr greiðsluupplýsingunum þínum. Nákvæmar persónuupplýsingar sem safnað er eru mismunandi eftir greiðslumáta, en þar á meðal eru upplýsingar eins og:
|
Kannana- og rannsóknargögn |
Þegar þú svarar könnun eða tekur þátt í notendarannsókn söfnum við og notum persónuupplýsingarnar sem þú gefur upp. |
Við fáum sumar upplýsingarnar sem nefndar eru hér á undan frá þriðju aðilum. Taflan hér að neðan lýsir flokkum þessara þriðju aðila.
Veitur þriðju aðila sem við fáum gögnin þín frá
|
||
---|---|---|
Flokkar þriðju aðila |
Lýsing |
Gagnaflokkar |
Auðkenningaraðilar |
Ef þú skráir þig í eða skráir þig inn í þjónustu Spotify gegnum aðra þjónustu sendir sú þjónusta okkur upplýsingar um þig. Þessar upplýsingar hjálpa til við að stofna reikning hjá okkur. |
Notandaupplýsingar |
Forrit, þjónusta og tæki þriðju aðila sem þú tengir við Spotify-reikninginn þinn |
Ef þú tengir Spotify-reikninginn þinn við forrit, þjónustu eða tæki frá þriðja aðila kunnum við að safna og nota upplýsingar frá þeim aðila. Við gerum það til að gera samþættinguna mögulega. Þessi forrit, þjónusta eða tæki þriðju aðila geta meðal annars verið:
Við biðjum um leyfi áður en við söfnum upplýsingum frá tilteknum þriðju aðilum. |
Notandaupplýsingar Notkunargögn |
Tækniþjónustuaðilar |
Við vinnum með tækniþjónustuaðilum sem veita okkur tilteknar upplýsingar, svo sem um almenna staðsetningu IP-talna (t.d. land eða landsvæði, borg eða ríki). Þetta gerir Spotify mögulegt að veita þjónustu, efni og eiginleika Spotify. Við vinnum líka með öryggisþjónustuaðilum sem aðstoða okkur við að vernda notendareikninga. |
Notandaupplýsingar Notkunargögn |
Greiðslu- og söluaðilar |
Ef þú velur að greiða í gegnum þriðju aðila (t.d. símafyrirtæki) eða með reikningi kunnum við að fá gögn frá greiðsluaðilum okkar. Það gerir okkur kleift að:
Ef við beinum þér til söluaðila fáum við gögn frá söluaðilanum sem tengjast kaupunum þínum. Til dæmis gætum við vísað þér á verslun fyrir varning listamanns í kerfi þriðja aðila eða á miðasölusíðu þriðja aðila. Með því að fá þessi gögn getum við:
|
Greiðslu- og kaupupplýsingar |
Auglýsinga- og markaðsaðilar |
Við fáum ályktanir frá tilteknum auglýsinga- eða markaðsaðilum. Þetta eru ályktanir sem þessir aðilar draga um áhugamál þín og óskir. Þetta gerir okkur kleift að birta meira viðeigandi auglýsingar og markaðssetningu. |
Notkunargögn |
Fyrirtæki sem við eignumst |
Við kunnum að fá gögn um þig frá fyrirtækjum sem við eignumst. Þetta er til að bæta þjónustu okkar, vörur og annað sem við bjóðum. |
Notandaupplýsingar Notkunargögn |
Ef þú sækir Spotify-farsímaforritið og prófar að nota Spotify eftir útskráningu söfnum við takmörkuðum upplýsingum um notkun þína á þjónustu Spotify, þar á meðal notkunargögnum. Við gerum þetta til að skilja hvernig þú nálgast og notar þjónustuna. Við gerum þetta líka til að tryggja að við bjóðum upp á réttu upplifunina fyrir þig, til dæmis miðað við land þitt eða svæði. Ef þú ákveður að stofna Spotify-reikning til að upplifa þjónustu okkar að fullu sameinum við þessi gögn Spotify-reikningsgögnunum þínum.
4. Tilgangurinn með því að nota persónuupplýsingar þínar
Taflan hér að neðan sýnir:
- tilganginn með því að nota persónuupplýsingar þínar
- lagalega réttlætingu okkar (sem hver um sig nefnist „lagagrundvöllur" samkvæmt gagnaverndarlögum fyrir hvern tilgang)
- flokka persónuupplýsinga sem við notum í hverjum tilgangi (sjá meira um þessa flokka í 3. hluta „Persónuupplýsingar sem við söfnum um þig")
Hér er almenn útskýring á hverjum „lagagrundvelli" til að hjálpa þér að skilja töfluna:
- Framkvæmd samnings: Þegar það er nauðsynlegt fyrir Spotify (eða þriðja aðila) að vinna úr persónulegum gögnum þínum til að:
- uppfylla skyldur samkvæmt samningi við þig. Þar á meðal eru skyldur Spotify samkvæmt notkunarskilmálum til að veita þér þjónustu Spotify, eða
- staðfesta upplýsingar áður en nýr samningur við þig tekur gildi.
- Lögmætir hagsmunir: Þegar Spotify (eða þriðji aðili) hefur hagsmuni af því að nota persónuupplýsingar þínar á ákveðinn hátt sem er nauðsynlegur og réttlætanlegur með tilliti til hugsanlegrar áhættu fyrir þig og aðra notendur Spotify. Til dæmis að nota notkunargögnin þín til að bæta þjónustu Spotify fyrir alla notendur. Hafðu samband við okkur ef þú vilt skilja tiltekinn rökstuðning.
- Samþykki: Þegar Spotify biður þig um að sýna samþykki þitt á notkun Spotify á persónuupplýsingum í tilteknum tilgangi.
- Samræmi við lagaskyldu: Þegar Spotify þarf að vinna persónuupplýsingar til að fylgja lögum.
Tilgangur með vinnslu persónuupplýsinga
|
Lagagrundvöllur sem heimilar tilganginn
|
Flokkar persónuupplýsinga sem notaðir eru í viðkomandi tilgangi
|
---|---|---|
Til að veita þjónustu Spotify í samræmi við samning okkar við þig. Til dæmis þegar við notum persónuleg gögn þín til að:
|
Efndir samnings |
|
Til að veita aðra hluta þjónustu Spotify. Til dæmis þegar við notum persónuleg gögn þín til að þú getir deilt tengli í efni á Spotify með einhverjum öðrum. |
Lögmætir hagsmunir Lögmætir hagsmunir okkar eru hér meðal annars:
|
|
Til að bjóða upp á tiltekna valfrjálsa viðbótareiginleika þjónustu Spotify. Í þessu tilviki biðjum við um skýrt samþykki þitt. |
Samþykki |
|
Til að greina, leysa og laga vandamál með þjónustu Spotify. |
Efndir samnings |
|
Til að meta og þróa nýja eiginleika, tækni og endurbætur á þjónustu Spotify. Dæmi:
|
Lögmætir hagsmunir Lögmætir hagsmunir okkar eru hér meðal annars að þróa og bæta vörur og eiginleika fyrir notendur okkar. |
|
Markaðssetning eða auglýsingar þar sem lög krefjast þess að við öflum samþykkis þíns. Til dæmis þegar við notum kökur til að glöggva okkur á áhugamálum þínum eða þegar krafist er samþykkis fyrir markaðssetningu með tölvupósti samkvæmt lögum. |
Samþykki |
|
Í öðru markaðs-, kynningar- og auglýsingaskyni þegar ekki er krafist samþykkis samkvæmt lögum. Til dæmis þegar við notum persónuupplýsingar þínar til að sníða auglýsingar að áhugamálum þínum. |
Lögmætir hagsmunir Lögmætir hagsmunir okkar eru hér meðal annars að nota auglýsingar til að fjármagna þjónustu Spotify til að við getum boðið mikið af henni ókeypis. |
|
Til að uppfylla lagalega skyldu okkar. Þetta gæti verið:
Til dæmis þegar við notum fæðingardag þinn þegar þörf krefur til að staðfesta aldur. |
Samræmi við lagaskyldu |
|
Til að verða við beiðni frá lögregluyfirvöldum, dómstólum eða öðrum lögbærum yfirvöldum. |
Fylgni við lagalegar skyldur og lögmætir hagsmunir Lögmætir hagsmunir okkar eru hér meðal annars aðstoð við lögregluyfirvöld til að koma í veg fyrir eða upplýsa alvarlega glæpi. |
|
Til að uppfylla samningsskyldur við þriðju aðila. Til dæmis þegar við útvegum gögn með gerviauðkenni um hlustun notenda okkar vegna þess að við höfum gert samning um það við rétthafa Spotify. |
Lögmætir hagsmunir Lögmætir hagsmunir okkar eru hér meðal annars:
|
|
Til að grípa til viðeigandi aðgerða þegar tilkynnt er um brot á hugverkarétti og óviðeigandi efni. |
Lögmætir hagsmunir Lögmætir hagsmunir okkar eru hér meðal annars að verja hugverkarétt og upprunalegt efni. |
|
Til að stofna, nýta eða verja réttarkröfur. Ef við eigum t.d. í málaferlum og þurfum að veita lögfræðingum okkar upplýsingar í tengslum við málaferlin. |
Lögmætir hagsmunir Lögmætir hagsmunir okkar eru hér meðal annars:
|
|
Fyrir viðskiptaáætlanir, skýrslugerð og spár. Til dæmis þegar við skoðum uppsöfnuð notendagögn eins og fjölda nýskráninga í tilteknu landi til þess að velja nýja staði til að kynna vörur okkar og eiginleika. |
Lögmætir hagsmunir Lögmætir hagsmunir okkar eru hér meðal annars að rannsaka og skipuleggja til að við getum haldið áfram að reka fyrirtækið með góðum árangri. |
|
Til að vinna úr greiðslunni þinni. Til dæmis þegar við notum persónuleg gögn þín til að þú getir keypt áskrift að Spotify. |
Framkvæmd samnings og samþykki |
|
Til að halda þjónustu Spotify öruggri og greina og koma í veg fyrir svik. Til dæmis þegar við greinum notkunargögn til að leita að sviksamlegri notkun á þjónustu Spotify. |
Lögmætir hagsmunir Lögmætir hagsmunir okkar eru hér meðal annars að vernda þjónustu Spotify og notendur okkar gegn svikum og annarri ólöglegri starfsemi. |
|
Til að inna af hendi rannsóknir og kannanir. Þegar við höfum til dæmis samband við notendur okkar til að fá ábendingar. |
Lögmætir hagsmunir Lögmætir hagsmunir okkar eru hér meðal annars að átta okkur betur á hvað notendum finnst um þjónustu Spotify og hvernig þeir nota hana. |
|
5. Persónuupplýsingum þínum deilt
Í þessum hluta kemur fram hverjir fá persónuleg gögn sem safnað er eða sem verða til gegnum notkun þína á þjónustu Spotify.
Opinberar upplýsingar
Eftirfarandi persónuleg gögn verða alltaf aðgengileg öllum í þjónustu Spotify (nema notendum sem þú hefur útilokað):
- prófílnafnið þitt
- prófílmyndin þín
- opnu spilunarlistarnir þínir
- annað efni sem þú birtir í þjónustu Spotify og öll tengd heiti, lýsingar og myndir
- hverjum þú fylgist með í þjónustu Spotify
- sem fylgjast með þér í þjónustu Spotify
Þú eða annar notandi getið deilt tilteknum upplýsingum í þjónustu þriðja aðila, svo sem samfélagsmiðli eða skilaboðaþjónustu. Þar á meðal er:
- prófíllinn þinn
- allt efni sem þú birtir á Spotify og upplýsingar um þetta efni
- spilunarlistarnir þínir og tengdir titlar, lýsingar og myndir
Þegar þessu er deilt kann þjónusta þriðja aðila að geyma afrit til að nota fyrir eiginleika sína.
Persónuupplýsingar sem þú getur kosið að deila
Við deilum eftirfarandi persónuupplýsingum aðeins með þeim sem lýst er í töflunni hér að neðan:
- ef þú hefur valið að nota eiginleika í þjónustu Spotify eða forrit, þjónustu eða tæki frá þriðja aðila, og við þurfum að deila persónulegum gögnum til að virkja þetta, eða
- ef þú veitir okkur á annan hátt leyfi þitt til að deila persónuupplýsingunum, t.d. með því að velja viðeigandi stillingu í þjónustu Spotify eða með því að gefa samþykki þitt
Flokkar viðtakenda
|
Flokkar gagna sem þú getur valið að deila
|
Ástæða til að deila
|
---|---|---|
Forrit, þjónusta og tæki þriðju aðila sem þú tengir við Spotify-reikninginn þinn |
|
Til að tengja Spotify-reikninginn þinn eða til að þú getir notað þjónustu Spotify í tengslum við forrit, þjónustu eða tæki þriðju aðila. Þessi forrit, þjónusta eða tæki þriðju aðila geta meðal annars verið:
Þú getur séð og fjarlægt margar tengingar þriðju aðila undir „Forrit“ á reikningnum þínum. |
Stuðningssamfélagið |
|
Til að gera þér kleift að notaþjónustu stuðningssamfélags Spotify. Þegar þú skráir þig fyrir reikningi í stuðningssamfélagi Spotify biðjum við þig um að búa til prófílnafn. Það verður sýnilegt öllum sem nota stuðningssamfélag Spotify. Við birtum líka allar spurningar og athugasemdir sem þú sendir inn. |
Aðrir notendur Spotify |
|
Til að deila upplýsingum um notkun þína á þjónustu Spotify með öðrum notendum Spotify, þar á meðal fylgjendum þínum á Spotify. Í „sýnileikastillingunum“ getur þú til dæmis valið hvort þú deilir listamönnum sem þú hefur hlustað á nýlega og spilunarlistunum þínum á prófílnum þínum. Þú getur líka valið að búa til eða taka þátt í sameiginlegum spilunarlista með öðrum notendum. Í sameiginlegum spilunarlistum færðu meðmæli byggð á hlustun. |
Listamenn og plötuútgefendur |
|
Til að fá fréttir eða kynningartilboð frá listamönnum, plötuútgáfum eða öðrum samstarfsaðilum. Þú getur valið að deila persónuupplýsingum í þessum tilgangi. Þú hefur alltaf kost á því að skipta um skoðun og draga samþykki þitt til baka. |
Upplýsingar sem við kunnum að deila
Í þessari töflu kemur fram með hverjum við deilum og hvers vegna.
Flokkar viðtakenda
|
Flokkar gagna
|
Ástæða til að deila
|
---|---|---|
Þjónustuveitendur |
|
Svo þeir geti veitt Spotify þjónustu sína. Þessir þjónustuveitendur eru til dæmis þeir sem við ráðum til að:
|
Greiðsluaðilar |
|
Svo þeir geti afgreitt greiðslur þínar og til að koma í veg fyrir svik. |
Auglýsingaaðilar |
|
Svo þeir geti hjálpað okkur að birta þér meira viðeigandi upplýsingar í þjónustu Spotify og mæla skilvirkni auglýsinga. Til dæmis hjálpa auglýsingaaðilarnir okkar okkur við sérsniðnar auglýsingar. |
Markaðssetningaraðilar |
|
Til að kynna Spotify ásamt samstarfsaðilum okkar. Við deilum tilteknum notandaupplýsingum og notkunargögnum með þessum samstarfsaðilum þegar þess þarf til að:
Dæmi um samstarfsaðila eru:
Samstarfsaðilar okkar gætu einnig sameinað persónuupplýsingar, sem við deilum með þeim, og aðrar upplýsingar sem þeir safna um þig t.d. um notkun þína á þjónustu þeirra. Við og samstarfsaðilar okkar kunnum að nota þessar upplýsingar til að bjóða þér tilboð, kynningar eða aðra markaðssetningu sem við teljum að þú hafir áhuga á. |
Hýsingarkerfi |
|
Hýsingarkerfi hýsa hlaðvörp svo að hægt sé að miðla þeim til þín. Við deilum tilteknum gögnum, svo sem IP-tölunni þinni, með hýsingarkerfunum þegar þú spilar hlaðvarp. Við gerum þér jafnframt kleift að straumspila hlaðvörp frá öðrum hýsingarkerfum sem eru ekki í eigu Spotify. Hlaðvarpsveitendur eiga að greina frá því í lýsingu hlaðvarpsþáttaraðar eða þáttar hvaða kerfi hýsir hlaðvarpið. Í persónuverndarstefnu hýsingarkerfisins kemur fram hvernig það notar gögn sem deilt er með því. |
Fræðilegir rannsakendur |
|
Fyrir rannsóknir, svo sem tölfræðirannsóknir og fræðilegar rannsóknir, en aðeins á nafnlausu sniði. Þegar gögn eru nafnlaus þýðir það að þau eru auðkennd með kóða en ekki nafninu þínu eða öðrum upplýsingum sem persónugreina þig með beinum hætti. |
Önnur fyrirtæki innan Spotify-samstæðunnar, þar á meðal fyrirtæki sem Spotify eignast |
|
Til að sinna daglegum rekstri og til að geta viðhaldið, bætt og veitt þér þjónustu Spotify og þjónustu þeirra fyrirtækja sem við eignumst. Dæmi:
|
Lögregluyfirvöld og önnur yfirvöld eða aðrir aðilar að málsókn |
|
Þegar við teljum, í góðri trú, að okkur sé skylt að gera það, til dæmis:
|
Kaupendur fyrirtækisins okkar |
|
Þegar við seljum eða semjum um að selja fyrirtæki okkar til kaupanda eða mögulegs kaupanda. Í því tilfelli kunnum við að flytja persónuupplýsingar þínar til arftaka eða hlutdeildarfélags sem hluta af viðskiptunum. |
6. Varðveisla gagna
Við varðveitum persónuupplýsingar þínar aðeins eins lengi og nauðsynlegt er til að veita þér þjónustu Spotify og í lögmætum og nauðsynlegum viðskiptatilgangi Spotify, svo sem:
- til að viðhalda afköstum þjónustu Spotify
- til að taka viðskiptaákvarðanir um nýja eiginleika og tilboð á grundvelli gagna
- til að uppfylla lagalegar skyldur okkar
- til að leysa ágreiningsmál
Hér eru nokkrir flokkar varðveislutíma og skilyrðin sem við notum til að ákvarða þá:
- Gögn varðveitt þangað til þú fjarlægir þau
Þú hefur rétt á að biðja okkur um að eyða tilteknum persónuupplýsingum sem tilheyra þér. Sjá nánari upplýsingar og yfirlit yfir aðstæðurnar þar sem við getum brugðist við beiðninni þinni í hlutanum „Eyðing" í 2. hluta, „Persónuverndarréttindi þín og stýringar".
Einnig er hægt að eyða tilteknum persónuupplýsingum beint í þjónustu Spotify. Þannig er til dæmis hægt að breyta eða eyða prófílmynd. Þar sem notendur sjálfir geta séð og uppfært persónuupplýsingar varðveitum við upplýsingarnar eins lengi og hver notandi vill nema einhver neðangreindur takmarkaður tilgangur eigi við. - Gögn sem renna út eftir tiltekinn tíma
Við höfum ákvarðað tiltekinn varðveislutíma til að sum gögn renni út eftir tilgreindan tíma. Til dæmis er persónuupplýsingum sem þú kannt að slá inn í leitarfyrirspurnir almennt eytt að 90 dögum liðnum. - Gögn sem eru varðveitt þangað til Spotify-reikningnum þínum er eytt
Við geymum sum gögn þangað til Spotify-reikningnum þínum er eytt. Dæmi um slíkt eru til dæmis notandanafn og prófílupplýsingar þínar á Spotify. Við geymum líka gjarnan straumspilunarferil á meðan reikningur er opinn, til dæmis til að geta boðið upp á sögulega spilunarlista fyrir notendur og sérsniðin meðmæli þar sem tekið er tillit til hlustunarvenja (til dæmis Tímahylki eða Spólað aftur í sumarið). Þegar Spotify-reikningnum þínum er eytt er þessum flokki gagna eytt eða þau gerð ópersónugreinanleg. - Gögn varðveitt í lengri tíma í takmörkuðum tilgangi
Eftir að reikningnum þínum er eytt geymum við sum gögn í lengri tíma en í afar takmörkuðum tilgangi. Til dæmis gætum við þurft að lúta laga- eða samningsskilyrðum þar sem þess er krafist. Þar á meðal eru lög um varðveislu gagna, fyrirmæli yfirvalda um varðveislu gagna vegna rannsóknar og gögn sem eru varðveitt vegna málaferla. Við kunnum einnig að varðveita gögn sem hafa verið fjarlægð úr þjónustu Spotify í takmarkaðan tíma. Það gæti verið:- til að tryggja öryggi notenda, eða
- til verndar gegn skaðlegu efni í kerfinu okkar.
Þetta hjálpar okkur að rannsaka möguleg brot á reglum fyrir notendur og kerfisreglum. Hins vegar fjarlægjum við ólöglegt efni ef þess er krafist samkvæmt lögum.
7. Flutningur til annarra landa
Sökum alþjóðlegs eðlis rekstrar okkar deilir Spotify persónuupplýsingum með alþjóðlegum fyrirtækjum innan Spotify-samstæðunnar, undirverktökum og samstarfsaðilum þegar það sem lýst er í þessari stefnu er innt af hendi. Þessir aðilar kunna að vinna úr gögnum þínum í löndum þar sem persónuverndarlög eru ekki talin vera eins sterk og lög ESB eða lögin sem gilda þar sem þú býrð. Til dæmis kanntu ekki að njóta sömu réttinda varðandi gögnin þín.
Í hvert sinn sem við flytjum persónuupplýsingar milli landa notum við verkfæri til að:
- ganga úr skugga um að gagnaflutningurinn samræmist gildandi lögum
- stuðla að því að gögnin þín njóti sömu verndar og innan ESB
Við notum eftirtalin lagaleg úrræði til að tryggja að allur gagnaflutningur samræmist viðeigandi Evrópulöggjöf:
- Staðlaðir samningsskilmálar („SCC"). Þessir skilmálar skylda mótaðilann til að vernda gögnin þín og veita þér réttindi og vernd sem er sambærileg við ESB. Til dæmis notum við staðlaða samningsskilmála til að flytja persónuupplýsingarnar sem lýst er í 3. hluta, „Persónuupplýsingar sem við söfnum um þig" til hýsingarveitu okkar, sem notast við þjóna í Bandaríkjunum. Þú getur nýtt réttindi þín samkvæmt stöðluðu samningsskilmálunum með því að hafa samband við okkur eða þriðja aðilann sem vinnur persónuupplýsingarnar þínar.
- Hæfisúrskurðir. Þetta þýðir að við flytjum persónuupplýsingar til landa utan EES þar sem til staðar eru viðunandi lög til verndar persónuupplýsingum að mati framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Til dæmis flytjum við persónuupplýsingarnar sem lýst er í 3. hluta, „Persónuupplýsingar sem við söfnum um þig" til söluaðila í Bretlandi, Kanada, Japan, Suður-Kóreu og Sviss.
Jafnframt greinum við og notum viðbótarvarnir eins og þörf þykir fyrir hvern gagnaflutning. Til dæmis notum við:
- tæknilega vernd, svo sem dulkóðun og gerviauðkenni
- stefnur og ferla til að mótmæla óhóflegum eða ólögmætum beiðnum stjórnvalda
8. Verndun persónuupplýsinga þinna
Við erum staðráðin í að vernda persónuupplýsingar notenda okkar. Við innleiðum viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að vernda öryggi persónuupplýsinga þinna. Hins vegar skaltu hafa í huga að ekkert kerfi er nokkurn tíma fullkomlega öruggt.
Við höfum innleitt ýmsar öryggisráðstafanir til að verjast óheimilum aðgangi og óþarfri varðveislu persónuupplýsinga í kerfunum okkar. Þar á meðal eru gerviauðkenni, dulkóðun og aðgangs- og varðveislustefnur.
Til að vernda notendareikninginn þinn hvetjum við þig til að:
- nota sterkt aðgangsorð sem þú notar aðeins fyrir Spotify-reikninginn
- deila aldrei aðgangsorðinu þínu með nokkrum öðrum
- takmarka aðgang að tölvunni þinni og vafra
- skrá þig út þegar þú hefur lokið við að nota þjónustu Spotify í samnýttu tæki
- lesa frekari upplýsingar um verndun reikningsins
Þú getur skráð þig út af Spotify á mörgum stöðum í einu með því að nota aðgerðina „Skrá út alls staðar" á reikningssíðunni þinni.
Ef aðrir einstaklingar hafa aðgang að Spotify-reikningnum þínum geta þeir fengið aðgang að persónulegum gögnum, stýringum og þjónustu Spotify sem er tiltæk á reikningnum þínum. Þú gætir til dæmis hafa leyft einhverjum að nota reikninginn þinn í samnýttu tæki.
Þú berð ábyrgð á að leyfa aðeins einstaklingum að nota reikninginn þinn þegar þú ert sátt(ur) við að deila þessum persónulegu gögnum með viðkomandi. Notkun annarra á Spotify-reikningnum þínum getur haft áhrif á persónusniðin meðmæli og niðurhal gagna.
9. Börn
Athugið: Þessi stefna gildir ekki um Spotify Kids, nema persónuverndarstefna Spotify Kids segi til um það. Spotify Kids er sérstakt Spotify-forrit.
Þjónusta Spotify hefur tiltekið „aldurstakmark" í hverju landi. Þjónusta Spotify er ekki ætluð börnum sem eru:
- yngri en 13 ára, eða
- á aldri þar sem er ólöglegt að vinna persónuupplýsingar þeirra, eða
- á aldri þar sem krafist er samþykkis foreldra fyrir vinnslu persónuupplýsinga
Við söfnum ekki vísvitandi persónuupplýsingum frá börnum undir viðeigandi aldurstakmarki. Ef þú ert undir aldurstakmarkinu skaltu ekki nota þjónustu Spotify og ekki veita okkur neinar persónuupplýsingar. Þess í stað mælum við með því að nota Spotify Kids-reikning.
Ef þú ert foreldri barns undir aldurstakmarkinu og veist til þess að barnið hafi veitt Spotify persónuupplýsingar skaltu hafa samband við okkur.
Ef við komumst að því að við höfum safnað persónuupplýsingum um barn undir viðeigandi aldurstakmarki gerum við eðlilegar ráðstafanir til að eyða persónuupplýsingunum. Til þess gæti þurft að eyða Spotify-reikningi barnsins.
Þegar þú notar samnýtt tæki í aðalþjónustu Spotify skaltu gæta þess að spila ekki eða mæla með óviðeigandi efni fyrir einstaklinga undir 18 ára aldri.
10. Breytingar á þessari stefnu
Við kunnum að breyta þessari stefnu öðru hverju.
Þegar við gerum efnislegar breytingar á þessari stefnu gerum við þér viðvart eftir því sem við á við aðstæðurnar hverju sinni. Til dæmis gætum við birt áberandi tilkynningu innan þjónustu Spotify eða sent þér tölvupóst eða tilkynningu í tækinu.
11. Hvernig á að hafa samband við okkur
Ef þú hefur spurningar um eða áhyggjur af þessari stefnu skaltu hafa samband við persónuverndarfulltrúa okkar eftir einhverjum af eftirfarandi leiðum:
- senda tölvupóst til privacy@spotify.com
- skrifa okkur á eftirfarandi heimilisfang: Spotify AB, Regeringsgatan 19, 111 53 Stokkhólmi, Svíþjóð
Spotify AB er ábyrgðaraðili persónuupplýsinga sem unnið er úr samkvæmt þessari stefnu.
© Spotify AB